"Fiskur sem fært hefur þér ánægjulega viðureign er of dýrmætur til að vera veiddur aðeins einu sinni. Fiskur sem þú sleppir er gjöf þín til næsta veiðimanns." (Lee Wulff)
Íslenska fluguveiðiþjónustan býður uppá skipulagningu stangaveiðiferða innanlands sem utan. Við útvegum veiðileyfi og leiðsögumenn með eða án bíla, höldum kastnámskeið fyrir einstaklinga og hópa og veitum ráðgjöf varðandi allt sem viðkemur fluguveiði. Við höfum á undanförnum árum tengst fyrirtækjum vítt og breytt um heiminn sem hafa áralanga reynslu af því að þjónusta stangaveiðimenn og útivistarfólk. Við leggjum metnað okkar í hvert einstakt verkefni og mottóið er að fólk komi með bros á vör heim úr hverri ferð.